Terms of service

Afgreiðsla pantana

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst, með fyrirvara um annir á útsölum og sértilboðsdögum.

Ef vara er ekki til á lager verður haft samband og upplýst um áætlaðan afhendingartíma. Komi upp sú staða að vara sé uppseld áskilur ANNA CORI sér rétt til að endurgreiða pöntun að fullu.

Vörur eru sendar með viðeigandi flutningsleið og er afhendingartími breytilegur eftir staðsetningu.

Viðskiptaskilmálar

ANNA CORI áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða annarra ófyrirséðra aðstæðna.

Einnig áskilur ANNA CORI sér rétt til að breyta vöruúrvali eða hætta sölu á vörum án fyrirvara.

Öll verð eru birt með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður er reiknaður áður en gengið er frá greiðslu.

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt.