Refund policy

Vöruskil og vöruskipti

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupum, að því gefnu að hún sé ónotuð, í fullkomnu ástandi og með öllum upprunalegum merkingum.

Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsigli hennar. Sölureikningur eða gjafamiði þarf að fylgja með til að staðfesta kaup.

Við skil á vöru er miðað við það verð sem var greitt við kaup. Ekki er hægt að skila útsöluvörum, en hægt er að skipta þeim fyrir aðra útsöluvöru á meðan útsölu stendur.

Skipti á vörum eru í boði ef óskað er eftir annarri stærð, lit eða annarri vöru. 

Endurgreiðslur (netverslun)

Viðskiptavinir netverslunar eiga rétt á endurgreiðslu innan 14 daga frá móttöku vöru.

Til að óska eftir endurgreiðslu þarf að hafa samband í gegnum tölvupóst (sjá upplýsingar neðst á síðu).

Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist aftur og getur tekið allt að 10 virka daga.

Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð viðskiptavinar.

Við endursendingu þarf eftirfarandi að fylgja með:

  • Nafn
  • Símanúmer
  • Heimilisfang og póstnúmer
  • Bankaupplýsingar og kennitala

Gölluð vara

Ef vara reynist gölluð leggjum við okkur fram við að leysa málið hratt og faglega.

Við bjóðum upp á skipti á vöru eða endurgreiðslu eftir því sem við á hverju sinni.

ANNA CORI greiðir allan sendingarkostnað sem fellur til vegna gallaðrar vöru.

Óski viðskiptavinur eftir að tilkynna galla er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst með viðeigandi upplýsingum. Erindi eru tekin fyrir eins fljótt og auðið er.