Shipping policy
Sendingar
Eftir að pöntun hefur verið móttekin fær viðskiptavinur staðfestingu í tölvupósti. Þegar unnið hefur verið úr pöntun berast frekari upplýsingar um sendingu.
Sé vara ekki til á lager verður haft samband og upplýst um áætlaðan afhendingartíma.
Vörur eru afgreiddar eins hratt og auðið er, yfirleitt innan 1–2 virkra daga frá því að pöntun berst. Afhendingartími getur verið breytilegur eftir staðsetningu.
Athugið að á álagstímum, svo sem útsölum eða sértilboðsdögum, getur orðið töf á afgreiðslu og sendingu.
Sendingarkostnaður er sýndur áður en gengið er frá greiðslu og greiðist af kaupanda.